Lesarinn

Kíktu í heimsókn til Lesarans

02.04.2007 14:46:18 / Gudrun

Aukafundur um inntöku nýrra Lesara

 

Skotið var á skyndifund hjá Lesaranum á laugardag. Allir nema GB mættu en hún var í sambandi símleiðis af sjúkrabeði sínu. GJ lagði þá tillögu fyrir fundarkonur að sökum þess að fækkað hefur í röðum Lesara (N. í Afríku næstu tvö árin og Hu. stóran hluta ársins erlendis) og í ljósi þess að blóðtaka þessi hefur beint eða óbeint leitt til þess að starfsemi hópsins hefur verið með minnsta móti síðastliðið ár. (einungis 4 fundir árið 2006) hvort ekki væri þá tímabært og skynsamlegt fyrir hópinn að taka alvarlega til athugunnar inntöku nýrra meðlima. Tillögu GJ var hafnað með öllu. :$  Andstaðan við fjölgun rökstudd með því að í stærri hópi væri erfiðara að fá orðið. Ákveðið traust væri til staðar í þessum hópi sem ekki væri hættandi á að missa.

Móttillögur voru bornar fram af Hu og Ha og Gb á sjúkrabeðinu um að leggja frekar meiri kraft í að fá til okkar gesti í hópinn, án þess þó að gestirnir verði endilega fastir meðlimir.

Ákveðið var að næsti fundur yrði í byrjum maí og bók mánaðarins Snow eftir nóbelsverðlaunahafnann Orahn Pamuk.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 21:31:56 / Gudrun

Lesarinn í sveitasælu

GBE fékk þá snilldarhugmynd að hittast að þessu sinni einhverstaðar úti í sveit. Fallegur bústaður í Svínadal stóð til boða: arinn, pottur og alles. :D

Lesarar: Gunna og Gunna, Ása og Hulda fóru þangað á föstudagskvöldi. Matarstúss og vordrykkur í pottinum, dýrðleg máltíð og bókmenntaspjall við arineldinn. :lol:

Í sem styrstu máli þá ákváðum að vera áfram laugardagskvöldið líka.

Ég mæli sterklega með því að bókmenntaklúbbar hafi þennann háttinn á, öðru hverju að minnsta kosti. Það var mjög sérstagt að hafa svona langan tíma til þess að ræða bókina og sjá hvernig umræðurnar beindust mjög eðlilega að henni alltaf öðru hverju á þessum langa tíma. Meðferðis voru líka bækur eftir Gunnar og Þórberg og við glugguðum í þær, lásum upp og veltum fyrir okkur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 11:41:21 / Gudrun

Lesarinn aftur í gang!

Nýtt ár! 2007 . Ó.. svo margar bækur að lesa og lesarafundir að fara á. Gaman , gaman. Fyrsti fundur ársins var hjá Huldu 2. febrúar. Þar voru mættar, fyrir utan húsráðanda, Gunnur tvær og Halldóra. Bók mánaðarins var Undantekningin eftir Christian Jungersen, ungan danskan höfund, föngulegan mjög. (sjáið bara höfundartengilinn!!) Bókin fjallar um ástand mála á skrifstofu upplýsingamiðstöðvar um þjóðarmorð í Kaupmannahöfn. Bókin er í aðra röndina spennu/sakamála saga en innskotskaflar með fræðsluefni um hin fjölmörgu þjóðarmorð sem hafa átt sér stað á þessari öld gera bókina mjög magnaða. Spurningin sem velt er upp er: Hvernig stendur á því að ósköp venjulegt, gott ,fólk getur breyst í viðbjóðslega pyntara og morðingja við tilteknar aðstæður. Ástandið á skrifstofunni speglar þau mannlegu samskipti sem í stærra samhengi geta leitt til hörmunga. Ég las einhverstaðar að nýja bókin hennar Auðar Jónsdóttur Tryggðarpantur, væri bók sem væri svipað hugsuð og þessi bók. Það gæti verið gaman að skoða. Sú bók sem ákveðið var að lesa fyrir næsta fund er bókin Skáldalíf eftir Halldór Guðmundsson. Ath. Tjékkið á"Hvað lesum við" tenglinum. Þar er kominn nokkuð þéttur listi yfir lestrarafrek klúbbsins.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 16:13:40 / Gudrun

marsfundurinn

 

Marsfundur Lesarans fór fram fimmtudaginn 9. mars. Fundarstaður var Smáragata 15. Mættar voru Ása húsráðandi, Guðrún J, Guðrún B, og Hulda. Halldóra og Nína voru fjarverandi. Til umræðu var bókin Karítas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.

Umræðan:

Meðal fundarkvenna voru skiptar skoðanir um bókina. Um það bil helmingur fundarkvenna töldu bókina frábæra. Þær hrifust af sannfærandi söguþræði og lýsingum á kjörum kvenna fyrr á öldinni. Hinn helmingur fundarkvenna  lýsti vonbrigðum með þróun persónu Karítasar. Í lýsingum höfundar á sýn Karítasar á umhverfi sitt, fannst fundarkonum skorta á innsæi í það hvernig myndlistarmenn sjá heiminn og takast á við hann.  Ef þörf er á frekari umræðu getur hún átt sér stað hér.

 

Ákveðið var að lesa Flugdrekahlauparann  eftir Khaled Hosseini fyrir næsta fund, því flestar fundarkvenna náðu ekki að lesa hann í sumar.  Næsti fundur verðu fimmtud. 6. apríl. hjá Halldóru.  Er það ekki annars?

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 18:00:42 / Gudrun

Bók mánaðarins

Karítas, án titils eftir Kristínu Marju  er bók mánaðarins og þar að auki ætlum við að lesa  Huldukonur í Íslenskri Myndlist eftir Hrafnhildi Schram.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 14:51:15 / Gudrun

Karítas

Kære læserinner! Hvernig gengur með Karitas? Munið að febrúar er stuttur mánuður og ekki langt í næsta fund! Ég er sjálf bara rétt byrjuð þannig að ég verð að gefa svolítið í. Mjög flottar nokkrar senur þarna strax í byrjun. Ætti að verða gaman. Hvar á svo næsti fundur að vera?

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 14:25:40 / Gudrun

Nýr tengill

Setti inn nýjan tengil. Gaman að fikta sig áfram og læra að blogga. Koma svo þið hinar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 23:47:49 / Halldora

Nokkrir tenglar

Setti inn nokkra spennandi tengla sem ég fann...en það þarf að bæta við. Fann fullt af spennandi bókum þegar ég var að þvælast um á netinu. Nýjasta bókin hans Murakami er örugglega góð.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 18:02:17 / Halldora

Næsti klúbbur

Við Nína áttum að stilla saman strengi okkar og ákveða dag fyrir næsta fund en við erum báðar hálfgerðar flækingskonur í næsta mánuði, Nína þó töluvert meiri en ég. Við gerðum í gær á kosningaskrifstofu Kjartans í þriðja. Dagurinn sem hentar er fimmtudagurinn 9. mars. Er ekki alveg kominn tími til að vera hjá mér? Lesefnið er Huldukonur í íslenskri myndlist eftir Hrafnhildi Schram og einhver önnur bók sem ég man ekki hver er þannig að þið verðið að bæta því við....jú það var Karítas.


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 19:27:49 / Halldora

Rolur með hriplekt minni

Þetta er vefsíða fyrir rolur með hriplekt minni.

» 0 hafa sagt sína skoðun